Föstudaginn 6. apríl veitti Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda 21 veitingastöðum viðurkenninguna „Icelandic Lamb Award of Excellence“. Viðurkenningu hlutu veitinga- og gististaðir fyrir framúrskarandi matreiðslu á íslensku lambakjöti og eftirtektarverð störf við kynningu á íslensku lambakjöti til ferðamanna.
Þetta er í annað sinn sem viðurkenningar eru veittar samstarfaðilum Icelandic Lamb á sviði veitinga- og gististaða. Dómnefnd skipuð þeim Sigurlaugu Jónasdóttur útvarpskonu hjá RÚV, Dominique Plédel Jónsson hjá SlowFood Reykjavík og Hafliða Halldórssyni verkefnastjóra hjá Icelandic Lamb valdi staðina sem hlutu viðurkenningar að þessu sinni.
Yfir 90 íslenskir veitingastaðir eru samstarfsaðilar sauðfjárbænda í gegnum verkefnið Icelandic Lamb sem ætlað er að undirstrika sérstöðu íslenskra sauðfjárafurða með tilvísun til uppruna, hreinleika og gæða. Árangurinn hefur farið fram úr björtustu vönum og sala á lambakjöti aukist verulega hjá veitinga- og gististöðum sem taka þátt í verkefninu.
Staðirnir sem hlutu viðurkenningu að þessu sinni eru:
Bjarteyjarsandur Hvalfirði
Eldhúsið Restaurant-Gistihúsið Egilsstöðum
Fiskfélagið
Fiskmarkaðurinn
Fosshótel Jökulsárlón Restaurant
Grillið- Hótel Sögu
Haust Restaurant – Fosshótel Reykjavík
Hótel Anna
Hótel Smyrlabjörg
Íslenski Barinn
Kopar
Lamb Inn Eyjafjarðarsveit
Matarkjallarinn
Múlaberg Bistro
Narfeyrarstofa
Rústík
Salka Húsavík
Slippurinn Vestmannaeyjum
Sushi Social
Von Mathús Hafnarfirði
VOX